Slauga ofurmamma

ofurmamman bloggar

12.11.2006 03:16:38 / slauga_2309

eruði frænkur???

Jæja ákvað að blogga því ég er ekki alveg að nenna að fara að sofa., sit hér með kex, osta og vínber, voða kósý.. vantar bara kerti..  ógeðslegt veður úti líka, grenjandi rigning... sem betur fer gleymdi ég leddaranum á Stokkseyri annars hefði ég labbað niðrí Ráðhúskaffi... en ákvað að fara á bílnum finnst leddarinn var á Stokkseyri.... Kúturinn náði að draga mig á Ráðhúskaffi og það var bara góður stemmarinn þar, eitthvað af liðinu ætlaði á Selfoss en ég ákvað að fara bara heim að kúra með Sóldísi...

Æ það kom snildar settnig út úr Kára áðan, man ekki við hvaða stráka hann var að tala og svo sagði hann allt í einu "Eruði frænkur?"  hann Kári var hress sko....

En mikið líður tíminn hratt, og Sóldís stækkar.. ohh hún verður ekki altaf svona lítil ;) en hún er nú á góðri leið með að ná mér, vantar bara 94 cm upp á 8)

En ég ákvað að búa bara til síðu fyrir myndirnar af böllunum sem við erum búnar að fara á við ofurmömmurnar (á reyndar eftir að segja þeim frá þessu) og þá geta þær hennt myndum þarna inn líka.... En Anna Sigga hérna eru þá myndir

http://public.fotki.com/ofurmommur/

En ég held ég ætti að þakka guði fyrir að vera enn á lífi, ég er nú svoldið heppin... hefði geta kveikt í húsinu í nótt 8| eða síðustu nótt.... en förum ekkert nánar út í það held ég, Ásdís þú kannski fattar hvað ég gerði.....

Skellti mér á Rock star NFSU og það var nú bara nokkuð gaman, hitti alveg fult af liði... Gaman að sjá hvað það er ruglað lið sem tekur alltaf þátt í þessu....

en jæja ætla að klára að éta þessa osta..

kv Slauga


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 00:21:26 / slauga_2309

ógó gaman

úff þá er á móti sól ballið búið :$ og það var sko ekkert smá gaman, enda er ég aum í mjaðmabeininu eða eitthva eftir að hafa verið að dansa alveg við sviðið, það var varla að maður týmdi að fara að pissa það var svo gaman... Takk æðislega Sjöfn, Sigga Huld, Heba, Ólöf og auðvitað Gyða driver fyrir æðislegt ball...og fyrirpartýið hjá Siggu Huld...

Svo vaknaði ég nú bara hress rétt yfir 9 (fór að sofa um half 7)og fór að horfa á barnatíman og beið eftir að Sóldís myndi vakna en hún vaknaði ekki fyrr en um half 11... 

Svo var farið að borða læri hjá ömmu og afa og auðvitað þurfti Þorsteinn að rugla svoldið í mér... hann kann alveg á mann orðið eftir svona djömm...

En leiðinlegasta var að ég var ekki með myndavélina en ég hefði hvort eð er ekkert haft tíma í að taka myndir en tók nokkrar í partýinu hjá Siggu Huld.. set þær kannski inn við tækifæri... og já kannski af Reiðhallarballinu líka .. Jæja Anna Sigga þær fara alveg að koma...

Svo er það mömmuhittingurinn á morgun og þá er nú margt að spjalla um 8)

Söngkeppni hjá Fsu á fimmtudaginn og að gömlum vana þá ætla ég nú að skella mér, það verður svona Rock star þema í ár..

en jæja kannski ég skelli nokkrum myndum inn...

og Sigga mín það verður eitthver bið í að kíkji í ríkið til þín aftur... eg fer frekar bara að kíkja í heimsókn til þín...

Slaugan.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 00:37:15 / slauga_2309

jújú einmitt

ég var eiginlega ógeðslega mikið heppin að bílnum mínum var ekki stolið í dag ;) ég var nebbla í bænum með múttu og ég var bara taka Sóldísi út og svona og mamma þurfti endilega að nota kveikjarann í bílnum svo ég kveikti á bílnum og svo sagði ég mömmu að drepa á bílnum en hún sagði nei ég er með sígó eeeeen ég hélt bara áfram að setja kerruna saman og skellti Sóldísi í kerruna og fór svo.... OG BÍLLINN ENNÞÁ Í GANGI!!! En ég fattaði það ekkert, ekki fyrr en ég fór að leyta af lyklunum klukkutíma seinna..Held ég þurfi nú að láta kíka á mig, fá eitthvað við þessu

það er komin NÓVEMBER og það eru að koma jól... og mig hlakkar nú bara doldið mikið til, voða notó að eyða jólunum með Sóldísi sætu..

Svo er það dansi ball með Á móti sól á morgun, Heba náði að plata mig með, það verður vonandi gaman en hvað er málið, það er ball í sveitinni og það á að koma rúta úr Reykjavík!!

Ég er orðin alveg rosaleg, er farin að glápa allt of mikið á nágranna, sko fram í tímann og svo dett ég stundum inn í glæstar vonir... en vandamálið er að ég næ að lifa mig alltof mikið inn í þættina.. Ég og Jenný ræðum stundum hvað er að gerast í nágrönnum og það mætti halda að þetta væri bara að gerast í alvöru hjá okkur.

Jæja er ekki að nenna að fara að sofa, held eiginlega að ég sofi of MIKIÐ!!! ég fer svona oftast að sofa um 12 leytið og svo vakna ég með Sóldísi svona á milli 5 og 6 stundum að ganga 7 og þá tek ég hana upp í til mín og gef henni og svo vakna ég bara um 9-10 og Sóldís stundum sofandi og enn á brjóstinu en í morgun vöknuðum við að verða 11 og þá mundi ég ekkert eftir að hafa tekið hana upp í :$

En jæja held ég horfi á eins og einn nágrannaþátt áður en ég fer að sofa eða kannski verða þeir tveir eða fleiri..

Góða nótt nótt..

Slauga neigbors fan :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 22:38:59 / slauga_2309

ofurmamman snýr aftur

jæja komin í ruglið aftur þar að segja blogg-ruglið :$

En annars þá er tíminn ekkert smá fljótur að líða og það er kominn nóvember... Ekki hvarlaði það að mér fyrir ári síðan að ég væri orðin mamma eftir ár ;) en hún Sóldís er nú bara æðisleg...bræðir mömmu sína á hverjum degi með fallega brosinu sínu..

En annars skellti ég mér nú á reiðhallarballið og fyrir það þá borðuðum við saman mömmuhópurinn og það var rosa gaman, ógó gott að borða og svona...

Svo gerðist svoldið sorglegt um daginn... Síminn minn DÓ :cry: og ég fór og fékk mér nýjan síma, þennan fína samlokusíma nema það að nú er ég nánast með engin númer á kortinu, þau voru öll í símanum og ég get ekki kveikt á gamla símanum aftur :frown:

En jæja kannski maður kíkij á einn granna þátt og fari svo að lúlla sér, þarf víst að vakna snemma og skutlast með Áslaugu út á flugvöll, stelpan ætlar að skella sér á Akureyri...

LATER ----> Slauga ofurmamma sem er búin að vera með neglur (reyndar gervi) í 2 vikur og allar heilar 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 21:34:01 / slauga_2309

Hætt´essu rugli

jæja ég bara nenni þessu rugli ekki lengur og er bara hætt að blogga 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 15:05:42 / slauga_2309

vá hvað ég varð hrædd....

Dísús kræst... mér hefur bara aldrei brugðið svona mikið á ævinni held ég 8|

Eeeen ég fór bara í vinnuna líkt og aðra morgna nema það að ég var látin á roðrífuvélina (segir sig nú sjálft) og Ósk var þarna líka í smá stund og svo Pawek (pólverji), og ég og Ósk vorum einmitt að tala um að missa bara puttan þarna á milli og eitthvað... en svo fer Ósk á frystirinn og hvað gerist fyrir mína... helv**** vélin tók bara vettlinginn minn og ég gargaði og gargaði en ég er nú svo sterk svo að ég togaði á móti svo hendin mín færi nú ekki með en hann Pawek var nú sem betur fer fljótur að slökkva á vélinni en þá var ég bara föst og komst ekkert úr vettingnum (var ekkert viss hvort að ég færi með alla hendina á því það var svo mikill þrýstingur) og það þurfti bara að skera mig úr vettlingnum... Ég man í rauninni ekkert eftir þessu nema að það standa bara fult af köllum í kringum mig... En sem betur fer slapp ég nú ótrúlega vel vélin náði aðeins að skera mig en svo er ég bara rauð og aum í hendinni, smá bólgin... Gísli sendi bara heim og sagði mig að jafna mig...

Slaugan... með auma hendi :cry:


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 21:18:35 / slauga_2309

mánaðarfærsaln...

Jæja eru ekki bara að koma mánaðamót..

Febrúar....

  • Þorrablótið, algjör snild, skemmti mér bara nokkuð vel þarna...
  • Undankeppnin fyrir Eurovision og auðvitað rústaði Silvía Nótt henni...
  • Hætti að vera hrædd við sprautur 8)
  • Hálf augabrúnin hvarf eiginlega bara (helv... hormónabreytingar)
  • Afmælispartý hjá Söndru og Hrund og Yrsa var með smá afmælispatý líka þó að hún hafi átt afmæli í nóvember. Erla Sif fékk bílpróf, Hófí tvítug og Gunnar frændi varð 39 ára...
  • Skellti mér á Ráðhúskaffi og það var bara góður stemmari þar..
  • Bolludagur og fékk ég þessar góðu bollur en mömmubollur eru nú bestar samt ;)
  • Sprengidagur.. ekki uppáhaldsdagurinn minn þar sem að ég borða ekki þetta saltkjöt og baunir en ég fékk bara lambakjöt og sósu hjá ömmu og afa á meðan hinir átu saltkjöt og baunir...
  • Skellti mér líka á Fsu ball 8| en það var bara fínt samt.. Skímó að spila..

Mars

  • Öskudagur og ég er að spá í að vera fiskikona ;)
  • Amma afmæli....
  • Fer loksins í "myndatökuna" sem ég get ekki beðið eftir að fara í

úff það er bara ekkert planað í mars... ekkert sem ég man eftir allavega... en maður gerir nú eitthvað af sér...

Annars á ég nú eitthverjar myndir frá helginni en nenni ómögulega að setja þær inn núna því ég ætla bara að fara að lúlla mér, var að vinna alveg til 19:00 svo það er nú komin lúllutími á mína...

Slaugan.... bara svo sybbin...


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 21:58:34 / slauga_2309

allt fyrir þig, konan mín ;)

Jæja verður maður ekki að hlýða konunni sinni 8) en ég er samt ekki sátt við konuna mína að hafa ekki komið á ráðhúskaffi í gær :cry: mig vantaði þig nú svoldið sko ;)

Vikan sem leið...

 ....bara vinnan og helvíti fínt að vinna þarna þegar Gísli er í góðu skapi :P Það sem veltur út úr kallinum ;)  Maður gerir nú annars ekki mikið fyrir utan að vinna og sofa já og borða þessa virku daga, sofnaði meira að segja um 8 leytið eitt kvöldið... maður reynir svona að fara svoldið snemma að sofa enda er ég pínu þreytt eftir daginn en vona að það fari nú eitthvað að minnka...

Helgin...

....var nú alveg ágæt en æ held ég tjái mig nú samt ekkert um smáatriðin neitt.. en var driver á Fsu ball sem var fínt, skímó að spila og svona.. kom reyndar heim með mjög svo sætan marblett :klikk: og alltaf þurfti ég að vera á milli í eithverjum slagsmálum ;) fékk olnboga skot hingað og þangað.. En laugardagurinn var nú bara leti dagur eiginlega en svo skrapp ég aðeins á selfoss og kíkti aðeins á Söndru og Hrund í smá afmælisparty en stoppaði ekki lengi þar og skellti mér í höfnina og það á Ráðhúskaffi og það var bara svaka stemmari, fólk alveg syngjandi fullt ég tók nú reyndar ekki lagið, dansaði bara með.. það var svona karokí.. en ég bjargaði kvöldinu og sótti disk með Til hamingju Ísland á.. held það hafi bara toppað allt.. Hitti líka alveg fult af fólki og allir að tala um hvað maður er æðislegur :P en svo skutlaði ég eitthverju liði í partý til Magga og nei nei Maggi ennþá á Ráðhúskaffi en Anna Sigga fékk nú lykilinn hjá honum bara.. Var nú komin langleiðina á Selfoss að sækja Kollu en nei nei þá var Erla Sif bara komin á Selfoss... ;) það varð vondur endir á góðu kvöldi... eða svona næstum.. Sem betur fer kom Ómar með mér annars hefði ég nú ekki meikað þessa ferð ;) dagurinn í dag er búin að vera algjör leti og eg var bara í náttaranum í allan dag 8)

Famundan...

...er nú bara ný vinnuvika, bolluát, úff get ekki beðið eftir að fá bollur :P mútta var svo þunn í dag að hún nennti ekki að baka bollur svo ég verð að bíða til morguns með að fá bollur :cry: svo er sprengidagur en ég ét nú ekki þetta kjöt svo ekki hlakkar mig til að éta það.. öskudagur... jakk ömurlegur dagur... svo kannski kíkjir maður í reykjavíkina næstu helgi... aldrei að vita hvað maður tekur upp á annars.. gæti alveg endað bara á Höfn í Hornafirði...

Gullkorn....

...Ætli það hefi ekki verið þegar ég var með smokkafræðslu fyrir stelpurnar og Steina... hehe kannski aðeins of seint en vona nú að stelpurnar hafi lært eitthvað af þessu já og Steini líka... ;)

Núna...

...er ég að spá í að skella mér að lúlla bara... pínu þreytt eftir þessa svaðalegu helgi....

Góða nótt krúsikrúttin mín :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 19:06:01 / slauga_2309

klukki klukk

Jæja á maður nú að gera eina tilraun enn til að blogga...

En það hefur nú ýmislegt gerst undanfarna daga og ýmsir gullmolar poppað upp í vinnunni aðalega en annars var Elli algjör stjarna á laugardagskvöldið... Kannski ég geri svona gullmola... eitthverntíman þegar ég nenni...

Silvía Nótt rústaði auðvitað júró.. eða hvað þessi keppni kallast nú, hún verður sko lang flottust útí Aþenu

Hehe svo er kjella bara búin að fara tvisvar í bíó núna og það á sömu myndina og langar alveg aftur... fórum á final destination 3, sjúkt góð og ógeðsleg...

En annars þá ætlaði ég bara að gera þetta klukk dót sem ég átti altaf eftir að gera...

4 störf sem ég hef unnið við um ævina:  Humarvinnslan/Portland, au-pair, Shell skálinn íHveragerðigróðurhús                                                 4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur og aftur: Finding Nemo, Stella í orlofi, forest Gump og Love actually
4 staðir sem ég hef búið á:  Eyjahraun 41, Básahraun 19, Selvogsbraut 11a í Þorlákshöfn og ringbaan 26 á Myllukrók í Hollandi      4 sjónvarpsþættir sem mér líkar: Nágrannar og Glæstar vonir svona þegar ég nenni en annars horfi ég svo lítið á tv.                                 4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum: - Danmörk, París, Las Vegas/Phoenix og Austurríki                                                                           4 síður sem ég skoða daglega, (Fyrir utan blogg)  barnaland.is, b2.is og visir.is og hotmailið mitt..
4 matarkyns sem ég held upp á: Rjúpa (jólamaturinn) kjúkklingur, grillaðar lambakótelettur
4 bækur sem ég les oft: Les bara ósköp lítið...
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna: í LAs Vegas, úti að borða á eitthverjum voða fínum stað (fengi mér túnfisk) á N.B.A leik, (ekki það ég sé eitthver körfuboltafan bara svo helvíti magnað að vera á svona leik) og sofandi í risa risa stóru þægilegu rúmi                                              
4 bloggarar sem ég klukka: það eru örugglega allir búnir með þetta svo ég klukka bara þá sem eru eftir...

Jæja en Ásdís fékkstu að ríða um helgina???

Slauga fiskur kveður að sinni og kannski hún setji inn myndir í kvöld... set þær á sama stað og venjulega...


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 21:15:48 / slauga_2309

hvar eru allir???

Gúdd dey 8)

Jæja kannski maður geri tilraun til að blogga... svo sem ekki mikið að gerast þessa dagana en sjett ég sem HATAÐI sprautur.. hata þær eiginlega ekkert núna, ég hef aldrei geta horft á þegar er verið að sprauta mig en í dag þá fannst mér þetta bara svo spennandi og fylgdist með kjellu taka blóðprufu í eitthver 3 hylki....

En annars er kvef og hálsbólga að gera manni lífið leytt þessa dagana... vinnan.. getur reyndar verið gaman í vinnunni... íslendingar eru alveg í minnihluta þarna allavega þeim megin sem ég er... en það reddast meðan Gústi og Ásgeir halda manni félagsskap.. Reyndar er svo Palli frá Sanhól farin að vinna "hinu megin" og manni hlakkar nú svoldið til að fara að vinna með honum 8)

En ég fór að segja Hönnu frá hittingnum sem ég og Skúli vorum að ræða eitt kvöldið.. sagði við Hönnu að við yrðum nú að láta verða að þessu.. svona að árgangur ´86 hittist og hafi gaman sem þýðir bara eitt... blinda fyllerí... en vorum að tala um að það yrði sniðugt að hafa þetta næsta vor... En hvar eru allir þessir krakkar sem voru eitthvað með okkur í bekk??

Emma: stelpan með fléttuna og hún var sko með dýragarð inni hjá sér... skjaldbökur, fiskar og allur andskotinn, kannski hún búi eitthvað nálægt húsdýragarðinum??? hver veit..

Siggi Sveins: uuu síðast þegar ég vissi var hann í Skotlandi, mamma hans var eitthver leir kona minnir mig...

Siggi Már: Snillingurinn sem greiddi sér með reglustiku... flutti síðan á Stöðvarfjörð or somthing...

Hebbi: Hver man ekki eftir því þegar Hebbi rústaði skólastofunni? grýtti stólum og svona... en það var það eina sem ég man eftir honum...

Anja: já sundkonan mikla... var reyndar bara með okkur í fyrsta bekk eða eitthvað.. flutti síðan í hva.. Hafnarfjörðinn

Þorlákur Fannar: Er ennþá með samviskubit eftir að hafa dúndrað hækju í klobban á honum  hérna fyrir nokkrum árum ;)

Þóra Birna: Skutlan sem hætti í 9. bekk og það sem ég best veit vinnur hún á Pizza Hut og er bara að gera það gott... Gott með hana...

Birna: Ætli hún hafi ekki verið ein af þeim duglegu að læra í 10. bekk og það síðasta sem ég vissi var að hún væri bara að fara að eignast krakka bara núna á næstu dögum..

Jóna Björg: uu uu hún er nú komin með eitt kríli og býr held ég bara í bænum.. man bara ekkert eftir henni í skólanum..

Anna Júlíana: já hvar er hún? flúði til Reykjavíkur ef mig minnir rétt..

Sandra og Hrund: þær fluttu á Selfoss og gerðu allt vitlaust þar, vinna/unnu báðar á kenný...

Rakel Ó.: já hvar er hún? hver man ekki eftir hundinum hennar?? lögguhundurinn Rex.. held samt að hún sé í Reykjavík eitthversstaðar...

Hinrik: Engill árgangsins... síðasta sem ég vissi af honum var í Kvennó...

Og svo við hin sem að búum ennþá í Þorl eða svona...

já gaman að rifja upp grunnskólaárin.. maður er orðin svo gamall...

En allavega held ég láti þetta blogg duga í bili... og drullist til að kommenta eitthva :^)

Slaugan... alveg gaga


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 17:04:54 / slauga_2309

vesen...

Djöfulsins vesen að vera svona slappur eitthvað :whut: alveg að verða biluð :klikk:

Svo það er nú ekki mikið að gerast hjá minni þessa dagana nema jú ég sofanði ansi snemma á þriðjudagskvöldið.. sofnaði eiginlega um leið og fear factor byrjaði og svo rumskaði ég um 21 og fór þá í bælið og svaf og svaf, vaknaði bara einu sinni til að pissa og með ógó mikið illt í hálsinu en svo stein sofnaði ég aftur og um 6 leytið ákvað ég að vera ekkert að fara í vinnuna ;)

Þorrablótið var nú helvíti skemmtilegt og sumir voru nú drukknari en aðrir og það var sko dansað 8) þvílíkt gaman alveg en maður var nú ekkert alltof hress á sunnudaginn...

En svo er nú að koma helgi aftur sem þýðir það að það er idol á morgun og ég ætla bara að skella mér í Hveragerði að horfa á idolið... get alveg horft á það þar þó ég sé svona slöpp :klikk: eða sé allavega til hvernig ástandið verður á kjellu :P

Svo eru bara augabrýrnar mínar að hverfa... er sko ekki sátt með það.. ógeðslega ljótt en fór í plokkun og litun áðan og fékk skýringu á þessu :P þetta vex vonandi aftur :$ þarf allavega ekki að hafa miklar áhyggjur strax en þetta er bara ógeðslega ljótt :klikk:

en jæja ég ætla að fara að horfa á dvd diskinn með Silvíu Nótt...

Laters Slauga.... með engar augabrúnir :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 21:41:07 / slauga_2309

MYNDIR...

ÉG HATA ÞETTA BLOGG...VAR BÚIN AÐ SKRIFA OG SKRIFA OG NEI GLEYMDI AÐ COPY-A EN ALLAVEGA ÞÁ ER ÉG AÐ SETJA INN MYNDIR AF ÞORRABLÓTINU SÍÐAN Í GÆR...  SET ÞÆR BARA Á SAMA STAÐ OG HINAR MYNDIRNAR...

SLAUGAN EIGINLEGA BARA ÞUNN 8|


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 22:29:53 / slauga_2309

janúar... febrúar

Jæja þá er Janúar búinn og já þessi mánuður var nokkuð lengi að líða en samt ekki...

Svona það helsta sem gerðist í þeim mánuði var

  • afmæli hjá Hönnu og Rakeli á Prikinu sem var bara helvíti fínt...
  • Pabbi átti afmæli og fékk fult af kökum, Haukur átti líka afmæli og það var æði góður matur... Þórhildur átti líka ammili..
  • ég byrjaði aftur að vinna eftir langt jólafrí
  • var bara edrú allan janúar...
  • fór á Hostel með Jóhann Þóri... æði gaman
  • byrjaði í fjarnámi, íslensku og ensku
  • rifinn úr mér enn einn endajaxl
  • Amma og afi fluttu í nýtt æðislega flott hús í billabúð 8)

og svo svona eitt og annað skemmtilegt..

svo er það febrúar....

  • afmælissamkvæmi (frumlegt orð já) hjá Yrsu betra er seint en aldrei.... kjella átti afmæli í nóvember... í fyrra...
  • Sandra og Hófi verða svo tvítugar...
  • Erla Sif fær bílpróf eins gott að passa sig þá...
  • Þorrablót auðvitað, maður skellir sér auðvitað...

og svo örugglega eitthvað fleira...

En annars er það bara vinnan og sofa... það er alveg sama hversu snemma ég fer að sofa, það tekur mig samt 30 mínútur að fara framúr en samt vakna ég oftast rétt á undan klukkunni en sofna svo aftur...

Ohh Krissi sendi mér æðislegt lag áðan um ljóta kallinn... var alveg búin að gleyma þessu lagi... bara snildar texti...

En ég held ég fari að sofa eða kannski lesa söguna sem ég var víst búin að lofa að lesa frá Jóhann Þóri...En ég segji bara góða nótt dúllurassgötin mín...

Orð dagsons: ríddu raba bólegur....


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 23:42:47 / slauga_2309

svaðalega færsla....

Jæja ég held það sé komin tími á smá blogg fyrir þetta lið sem nennir að skoða þetta ennþá...

En allavega er barasta allt fínt að frétta af minni, bara vinna, byrjuð í fjarnámi og bara allt í gúddý...

það sem að hefur svo gerst síðustu daga jú endajaxlinn var tekin og já bara skorið og saumað og það tók mig alveg klukkutíma að gera þetta allt... deyfingin tók líka sinn tíma.. en ég hélt að þetta myndi nú bara jafna sig vel eins og þegar hinn var tekin og nei aldeilis ekki, fór aftur til tannsa á þriðjudegi því mig verkjaði svo í þetta og hann tók sauminn bara úr og sprautaði saltvatni alveg þarna oní gatið sem var frekar vont og tróð síðan bómul með pensilíni á oní gatið og djöfull var það vont... ég skil ekki hvað er málið með þessa endajaxla, af hverju erum við að fá þá? þeir eru rifnir úr flestum og svo er bara eithvað vesen með þetta...

En nóg um reiði mína á endajöxlum...

Vinnan er fín annars, helvíti skemmtilegt að vinna með gömlu kjellunum stundum...

kíkti svo niðrí bæ í gær og úff... þvílíkt kvöld.. komumst eiginlega bara að því að strákar eru bara ógeðlsegir... reyna við allt sem að hreyfist og ef það hreyfist ekki þá hrista þeir það.. það byrjaði eitthver bara að fikta í hárinu á mér 8| HALLÓ maður fer ekkert að fikta í hárinu á bara eitthverjum... og nei ekki nóg með það þá var ég bara að dansa í mínum gúddý fíling og í mínum uppáhaldsskóm (hvítu með kisunni og stjörnunum) og svo kemur eitthver gaur þarna og er svona að dansa svoldið nálægt mér... og nei allt í einu kominn fyrir aftan mig og skellir mér á öxlina á sér og hvað gerði ég... skíthrædd auðvitað... öskarði og öskraði (held það hafi ekki farið framhjá neinum á dansgólfiu) og sriklaði eins og fiskur og þar af leiðandi sparkaði ég skónum mínum eitthvert... og ég var heillengi á einum skó... þetta var bara það skondnasta sem að ég hef lennt í held ég.. svo klípin í rassinn og já ojj strákar bara.... fékk alveg nóg af þeim þarna inni... veit ekki hvort að þetta er bara Glaumbar eða hvað allavega hef ég ekki lennt í alveg svona svaðalegu áður...

en nóg um stráka...

Svo eru amma og afi bara flutt, þvílíkt flott hjá þeim, öfunda þau bara nokkuð mikið...

Svo er þorrablót næstu helgi og jújú maður fer nú þangað...

en já held að þetta sé komið fínt sko... maður reynir kannski að vera duglegri að blogga næstu daga... en lofa engu :P

Nótt nótt litlu baunirnar mínar


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 23:42:53 / slauga_2309

dúrú

dúrú... ég nenni ekki að blogga... en samt að láta vita að ég er á lífi 8)

Slauglauga sem nennir bara alls ekki að blogga....


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti